Samt er ég manneskja, eins og þú, og reyni að lifa lífi mínu eins og allir aðrir.
Til þess nota ég ýmis bjargráð til að auðvelda mér lífið.
- Fyrst fékk ég heyrnartæki 3 ára, sem ég var lengi að venjast. Biluðu eyrun
- Ég fékk góðan kennara sem hjálpaði mér að ná tökum á lestri og bæta framburð minn.
- Ég var í talkennslu þar til ég varð 11 ára.
- Ég notaði svokallað FM tæki í skóla, sem var annars vegar hljóðnemi fyrir kennara og móttakara fyrir nemanda (mig). Tækið var ekki fullkomið og þverneitaði ég að nota það 11 ára gömul.
- Ég átti góðar vinkonur sem hjálpuðu mér í skólanum ef ég skildi ekki hvað átti að gera. Félagslynd
- Komin í menntaskóla fékk ég rittúlk, sem skrifaði á fartölvu allt sem kennari sagði í tímum og ég glósaði.
- Ég byrjaði að læra táknmál 15 ára og tók það sem þriðja mál í menntaskóla í stað þýsku eða frönsku. Tungumálanörd
- Ég fór að nota táknmál daglega, þar sem ég umgekkst mikið heyrnarlausa vini og þjálfaði mig upp í að geta notað táknmálstúlka í tímum. Þó fannst mér rittúlkurinn alltaf bestur. Félagslynd
- Upp úr tvítugu þróaði ég með mér „Deaf identity“ og ég öðlaðist sjálfstraust sem heyrnarlaus einstaklingur.
- Á rúmu ári versnaði heyrnin mín mjög mikið og ég var orðin lög-heyrnarlaus, þó ég hefði enn heyrnarleifar. Mér bauðst kuðungsígræðsla, sem ég hafnaði. Biluðu eyrun
- Ég kláraði grunnskólakennaranám frá Kennaraháskóla Íslands og hafði tekið dönsku í kjörsviði. Ég var, þrátt fyrir allt, góð í að skrifa og lesa dönsku, og fannst skemmtileg áskorun að takast á við dönskuna í háskóla. Það skemmdi heldur ekki að sami rittúlkur úr menntaskólanum túlkaði fyrir mig á dönsku í dönskutímunum. Tungumálanörd
- Ég ákveð að fara til Osló og læra til masters í Oslóarháskóla. Sérhæfingin var audiopedagogikk í sérkennslu, s.s. að sérhæfa mig í allt sem tengdist heyrninni og úrræðin sem var í boði þegar heyrnarskerðing er uppgötvuð. Tungumálanörd Félagslynd
- Ég ákveð eftir námið að ég væri tilbúin að fara í kuðungsígræðslu í Noregi, en flutti heim áður en af því varð.
- Ég fór að finna fyrir langþreytu eftir heimkomu til Íslands. Eftir góða umhugsun ákveð ég að fara í kuðungsígræðslu í von um að hún myndi létta mér lífið.
- Ég fór í endurhæfingu fyrir kuðungsígræðsluþegar í Noregi, korter í covid og kláraði seinni hluta endurhæfingunnar í gegnum tölvu. Félagslynd
- Ég heyri meira og betur en áður, en skil minna í samtölum, svo ég verð að fara vel með mig og hvíla mig eftir þörfum. Félagslynd